Tuesday, April 29, 2008

36. tilnefning

Súkkat - Ull[1998]
Tilnefning: Kjartan
Sá að það þýddi ekki annað en bregðast skjótt við þegar Hö laumaði inn sinni uppáhaldsplötu með Nútímakjaftæði. Hérna eru meisarakokkarnir í Súkkati og Ull frá 1998. Snilldardiskur þó ekki matardiskur með meistaraverkum á borð við Framtíðardraumar og Lafir það litla, já og svo Elvisperlan Suspicion í ógleymanlegri útsetningu.




Thursday, April 24, 2008

35. tilnefning

Tilnefning: Hörður

Enn heldur maður sig við 1980. Hlustaði fyrst á þessa plötu með eldri systkinum. Keypti svo geisladiskinn fyrir ca. 10 árum til þess að endurnýja kynnin. Ekki spurning í mínum huga, einfaldlega besta plata Dire Straits. Á því greiða leið hér inn meðal bestu platna sem út hafa komið. Plata sem lætur sem lætur engann ósnortin með lögum á borð við Tunnel of love og Romeo and Juliet.

Tunnel of Love

Romeo and Juliet

Skateaway

Expresso Love

Dire Straits & Eric Clapton - Solid Rock Live Knebworth 1990[ekki af Making movies]

Wednesday, April 23, 2008

34. tilnefning

Tilnefning: Guðjón
Mín tilnefning þessa vikuna er snilldar diskur…Rokk í Reykjavík…frábær diskur með eðal Íslensku pönki….Lollipop, Ó,Reykjavík, Sieg Heil, Rúdolf, Í nótt og fleiri stórkostleg lög sem lifa heldur betur í minningunni.

Thursday, April 17, 2008

33. tilnefning

Tilnefning: Kjartan

Það kemur fleira frá Svíaríki en Abba og félagslegar íbúðir í eigu sveitarfélaga. Hér
er komin einn besti vínyll í mínu safni. Þarf endilega að verða mér út um disk því
ég hef ekki heyrt þessa plötu í fjölda ára. Þarna er á ferðinni þétt rokk með frumlegum útsetningum og flottum textum sem auðvelt er fyrir Íslendinginn að skilja. Lög á borð
við Bibel og Saker som hun gör eru algjör snilld. Þess má geta ef einhver telur sig kannast
við hljóminn að einn meðlima Imperiet, Cristian Falk, vann með Bubba að hinni ömurlegu
hvalaplötu (kvala plötu), á svipuðum tíma, sem skýrir sömu útsetningar og eru á
þessari plötu.
Bibel
BIBEL / GUD ÄR DÖD!
http://www.last.fm/music/Imperiet/Synd







Monday, April 14, 2008

32. tilnefning

Eric Clapton - Unplugged[1992]
Tilnefning: Guðjón

Jæja mín tilnefning þessa vikuna er frá meistara Clapton..mjög ljúfur og
góður diskur. Snilldarlög eins og Layla,Tears in heaven,Alberta og
Lonely Stranger…bara einfaldlega frábær diskur.
Layla
Lonely Stranger
Old Love
Tears in Heaven
Alberta Alberta in 1977

Eric Clapton heimasíða
Eric Clapton heimasíða UK

Sunday, April 13, 2008

31. tilnefning

Tilnefning: Hörður

1980 var gott ár. Ég fermdist þetta ár, Hekla gaus, Vigdís kosin forseti
og síðast en ekki síst, Ísbjarnarblús kom út. Held að það þurfi ekki Bubba
eða Bigga í Maus til þess að rífast um þetta. Örugglega ein áhrifamesta og
besta íslenska plata sem út hefur komið. Þurfum ekkert að deila um það.

Stál og hnífur(Live)
Ego – Ísbjarnarblús(Live)
Texti Ísbjarnarblús

Tuesday, April 8, 2008

30. tilnefning

Tilnefning: Kjartan

Bruce Springsteen. Darkness on the Edge of Town kom út 1978. Frábær plata
sem inniheldur m.a. dýrgripina Badlands og The Promised land. Besta plata
kallsins að mínu mati.
Badlands(Live)
The Promised Land(Live)
Adam Raised A Cain "Boston 22-8-99"
RACING IN THE STREET(Live)

Heimasíða

Monday, April 7, 2008

29. tilnefning

Bubbi - Kona[1985]
Tilnefning: Guðjón
Ég held að við verðum nú að setja eina Bubba plötu hér inn…
þannig að mín tilnefning er….Bubbi – Kona
Frábær diskur..einn af þeim sem maður fær aldrei leið á !
Get reyndar lofað ykkur því að fleiri Bubba diskar munu koma
síðar enda VAR Bubbi frábær.

Romeó og Júlía

Heimasíða Bubba
Kona á bubbi.is
Nordic Store
tonlist.is

Friday, April 4, 2008

27.tilnefning


Tilnefning: Kjartan
Samkvæmt áskorun frá GG þá er hér tilnefning vekunnar. Plata platnanna, The Wall. Hef engan hitt til þessa dax sem ekki fýlar þessa plötu og því er ekki fleiri orðum eyðandi á hana.
Another Brick in the Wall
Comfortably Numb
Mother
Mother (Live)
Comfortably Numb (1980)
Run Like Hell (1980)
Goodbye Blue Sky

http://www.pinkfloyd.co.uk/index.php
http://www.roger-waters.com/