Tilnefning: Kjartan
Það kemur fleira frá Svíaríki en Abba og félagslegar íbúðir í eigu sveitarfélaga. Hér
er komin einn besti vínyll í mínu safni. Þarf endilega að verða mér út um disk því
ég hef ekki heyrt þessa plötu í fjölda ára. Þarna er á ferðinni þétt rokk með frumlegum útsetningum og flottum textum sem auðvelt er fyrir Íslendinginn að skilja. Lög á borð
við Bibel og Saker som hun gör eru algjör snilld. Þess má geta ef einhver telur sig kannast
við hljóminn að einn meðlima Imperiet, Cristian Falk, vann með Bubba að hinni ömurlegu
hvalaplötu (kvala plötu), á svipuðum tíma, sem skýrir sömu útsetningar og eru á
þessari plötu.
Bibel
BIBEL / GUD ÄR DÖD!
http://www.last.fm/music/Imperiet/Synd
No comments:
Post a Comment