Sunday, October 26, 2008

99. tilnefning

Tilnefning: Hörður

Þessa skífu keypti ég í Japis Brautarholti árið 1995 þegar sú ágæta verslun var þar til húsa. Mér þótti og þykir þessi plata þrælgóð. Gott melódískt gítarrokk með slögurum eins og Morning glory, Champagne supernova og Wonderwall. Aftur á móti hefur kjafturinn, slagsmál o.fl. fylgt þeim Gallagher bræðrum alla tíð. Það hefur nú farið dálítið í taugarnar á mér enda kolruglaðir menn. En blessunarlega hafa þeir náð að gefa út 2 afbragðsplötur á ferli sveitarinnar enn sem komið er í það minnsta.

Fróðleikur:
http://en.wikipedia.org/wiki/Oasis_(band)
http://www.oasisinet.com/Index.aspx

Youtube:
Wonderwall
Morning glory
Chamagne supernova
Hello (live)
Roll with it
Wonderwall (live)

Hér er svo myndband þar sem ráðist er á Noel Gallagher á tónleikum í Toronto nýlega. Varla hægt að mæla með slíkri framkomu en Noel vanur slagsmálum.
http://uk.youtube.com/watch?v=CX5JBsKih0c

Þeir bræður ræða árásina
http://uk.youtube.com/watch?v=RdKeKXUE4kY&feature=related

10 things Liam loves/hates
http://uk.youtube.com/watch?v=s0noXR1B3Bc&feature=related

4 comments:

Anonymous said...

Gaui er nú vanur slagsmálum frá því á Hverfisgötunni í gamla daga. Eins gott að þeir bræður í Oasis séu víðs fjarri.
Regards, Sáki

Anonymous said...

ég er mjög óvanur slagsmálum...hins vegar vanur að vera laminn...hvað segir Kjartan um það ?

Anonymous said...

Ég hef aldrei lamið þig Guðjón, alveg satt.
Kv. Kjartan

Anonymous said...

Engin er smíð nema barsmíð sé.
Kv. Annþór.