Wednesday, February 24, 2010

Tilnefning nr. 24 - Guðjón

Tvær stjörnur - Megas[2002]

Ég vil sjá þetta meistaraverk á listanum

Megas – Tvær stjörnur
Þetta lag kom út 2002 á Englaryk í tímaglasi.



Allnokkrir hafa spreytt sig á þessu lagi.. með misgóðum árangri
Youtube 1
Youtube 2

Tíminn flýgur áfram
og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið
um það hvert hann fer.
En ég vona bara að hann
hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.

Ég gaf þér forðum
keðju úr gulli um hálsinn þinn,
svo gleymdir þú mér ekki
í dagsins amstri nokkurt sinn.
Í augunum þínum svörtu horfði
ég á sjálfan mig um hríð
og ég vonaði að ég fengi
bara að vera þar alla tíð.

Það er margt sem angrar
en ekki er það þó biðin
Því ég sé það fyrst á rykinu,
hve langur tími er liðinn.
Og ég skrifa þar eitthvað með
fingrinum sem skiptir öllu máli.
Því að nóttin mín er dimm
og ein og dagurinn á báli.

Já, og andlitið þitt málað,
hve ég man það alltaf skýrt,
augnlínur og bleikar varir,
brosið svo hýrt.
Jú ég veit vel, að ókeypis
er allt það sem er best.
En svo þarf ég að greiða
dýru verði það sem er verst.

Ég sakna þín í birtingu
að hafa þig ekki við hlið mér
og ég sakna þín á daginn
þegar sólin brosir við mér.
Og ég sakna þín á kvöldin
þegar dimman dettur á.
En ég sakna þín mest á nóttinni
er svipirnir fara á stjá.

Svo lít ég upp og sé
við erum saman þarna tvær
stjörnur á blárri festingunni
sem færast nær og nær.
Ég man þig þegar augun mín
eru opin, hverja stund.
En þegar ég nú legg þau aftur,
fer ég á þinn fund.

2 comments:

Anonymous said...

Koma svo Hörður...setja tilnefninguna inn...get ekki beðið !!..OHHHH ég er svo spennt !

Kv.

Binna bændakona Syðri Hömrum.

Anonymous said...

Íslenski Megasinn... 'ann er góður!

Kveðja, Félag íslenskra kúabænda.