Tuesday, May 4, 2010

Tilnefning nr. 102 - Hörður

Bjór - Fræbbblarnir[1981]



Lagið kom upphaflega á EP plötu árið 1981. Þrælgott lag líkt og mjöðurinn.



Skellti mér á tónleika Fræbblana á Sódómu 30.04.2010. Mjög fínir tónleikar, voru bara betri en ég átti von á. Hitti Sáka, hann var greinilega með vélina meðferðis sbr. neðangreint tóndæmi. Kunnum honum bestu þakkir fyrir.

Bjór live á Sódómu 30.04.2010

Heimasíða

Texti: Valgarður Guðjónsson

Það stendur í lögum.
Það stendur hér.
Að þeir eigi að hafa vit fyrir mér.
Þeir slefa út ræðum.
Þeir jarma í kór.
Þeir segja að ég verði slæmur af bjór.
Finnst þeim pillur betri en bjór?
Mér finnst meira en nóg...
Næst klippa þeir glösin mín
svo ég geti ekki drukkið eins stíft.
Finnst þeim þynnir betri en bjór?
Mér finnst komið nóg.
Næst mæla þeir magnið á mann
svo þeir finni strax stimpil á hann.
Finnst þeim límið betra en bjór?
Mér finnst meira en nóg...
Næst gera þeir Ríkið að bar
svo ég verði að hella í mig þar.
Finnst þeim pillur betri en bjór?
Mér finnst komið nóg..
Þeir segja að ég hafi vit til að velja þá
en ég hafi ekki vit til þess að hafa vit fyrir mér.

12 comments:

Gaui Gaua said...

Frábært lag..og Mr. Sáki..takk fyrir upptökuna !! Sé mikið eftir að hafa ekki farið á tónleikana.

Heyjólfs said...

Til fróðleiks má benda á að Fræbblarnir munu halda tónleika á Húsavík 15.maí.

Gaui Gaua said...

Spennandi....á að skella sér ??

Kjartan said...

Að fá sér bjór á Húsavík? Hödda munar ekkert um það enda frægur fyrir að fara eingöngu til Sandgerðis til að fá sér kúlu. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að lagið er gott.

Heyjólfs said...

Legg til að þið félagarnir leggið land undir fót og skellið ykkur til Húsavíkur ásamt Sáka.

Gaui Gaua said...

Verst að Ladan er ekki lengur í eigu Kjartans....annars væri Kúluferð til Húsavíkur alveg inni í myndinni !

Kjartan said...

Latan hvílir í friði í bílakirkjugarði á Árskógsströnd eftir langa og stranga og dygga þjónustu við eigendur sína í næstum 20 ár, nú síðast í Hrísey. Það er aldrei að vita nema Sáki geti fengið hana á spott prís, gert hana upp og keyrt síðasta spölinn til Húsavíkur með Hödda enda ekki löng leið.

Gaui Gaua said...

Ladan klikkaði ekki...margar "skrautlegar" minningar sem tengjast henni :)
Blessuð sé minning hennar !

Kjartan said...

Það má geta þess til gamans að sáki á rætur þarna fyrir norðan því að pabbasáki á heima rétt hjá lödunni.

Gaui Gaua said...

Heldur þú að PabbiSáki bjóði ekki uppá öl ef við kíkjum á hann ?

Kjartan said...

Bjór og jafnvel eitthvað sterkara. Ekki spurning!

Gaui Gaua said...

Flott....skellum okkur !