Wednesday, January 19, 2011

Tilnefning nr. 283 - Kjartan

Þú bíður allavegana eftir mér - Megas[1986]

Megas - Þú bíður allavegana eftir mér af í góðri trú frá 1986



kóver

Nótur handa áhugasömum

Ég hef farið víða,
ég hef verið hér og þar
og ég veit að við öllum þessum spurningum
er til eitt og annað loðið svar.

Og ég hef verið fyrir austan
þar sem fjöllin sökkva sjálfsagt enn.
Í sjóinn ég þambaði pilla
einmitt þar sem fjallaskáldið skálaði í denn.

Heilsaðu öllum heima,
þeim sem heldurðu að vilji muna eftir mér.
Barnatrúnni er ég vísast búinn að gleyma
en það bíður jú hver loks eftir sjálfum sér.

Ég hef komið í Hallormsstað
þar sem angan engu líka
ég ætlaði mér að þefa uppi
en ég fann þar ekki nokkra slíka.

Einungis þýskar kengúrur, kynjadýr
já, og kjarr, tuttugu metra hátt,
dreifbýlissjoppu og gaddavír.

Heilsaðu sérhverjum heima
sem þú heldur að vilji gangast við mér.
Barnatrúnni er ég vísast búinn að gleyma
en það bíður jú allra að þurfa að staldra við eftir sjálfum sér.

Og nú er ég hérna á mölinni í mestri nánd og firð,
jú, mér miðar sjálfsagt eitthvað
og ég skal svara þér ef þú spyrð.

Og þegar svo allir eru komnir undir sæng
og biðja þar bænirnar sínar
þá bíð ég hér í myrkrinu eftir að heyra þínar.

Heilsaðu öllum heima,
sem þú heldur að gangist við mér.
Barnatrúnni er ég fyrir löngu búinn að gleyma
en það bíður jú hver loks eftir sjálfum sér.

Heilsaðu hverjum þeim heima
sem þar harka aleinn af sér.
Barnatrúnni er ég að mestu búinn að gleyma
en þú bíður jú, allavegana eftir mér.

2 comments:

Anonymous said...

Gaman væri ef síðuhirðir mundi taka saman tölur yfir þá tónlistarmenn sem eru með flestar tilnefningar.

Anonymous said...

Tek undir þetta - gæti verið mjög athyglisvert.