Sunday, April 13, 2008

31. tilnefning

Tilnefning: Hörður

1980 var gott ár. Ég fermdist þetta ár, Hekla gaus, Vigdís kosin forseti
og síðast en ekki síst, Ísbjarnarblús kom út. Held að það þurfi ekki Bubba
eða Bigga í Maus til þess að rífast um þetta. Örugglega ein áhrifamesta og
besta íslenska plata sem út hefur komið. Þurfum ekkert að deila um það.

Stál og hnífur(Live)
Ego – Ísbjarnarblús(Live)
Texti Ísbjarnarblús

2 comments:

Félagar á besta aldri said...

Ég er þér innilega sammála...snilldarplata --- var á mínum lista og ég hefði tilnefnt hana fljótlega !

Anonymous said...

Jamm jamm, enginn ágreiningur um þessa. Biggi hvað...