Thursday, September 18, 2008

83. tilnefning

Spilverk Þjóðanna - Sturla[1977]
Tilnefning: Guðjón
Mín tilnefning þessa vikuna er plata með Spilverki Þjóðanna – Sturla…held að platan hafi fyrst verið gefin út 1977. Frábær diskur þar sem Diddú fer gersamlega á kostum.
1. Sirkus Geira smart 2. Trumba og Sturla 3. Arinbjarnarson 4. Eftir predikun 5. Hæ hó 6. Ferðabar 7. Húsin mjakast upp 8. Skandinavíu blues ("Kom hjem til mig") 1. Skýjin 2. Söngur dýranna í Straumsvík 3. Nei sko 4. Gul og rauð og blá 5. Bob Hope 6. Sturla 7. Sannaðu til 8. Lag, ljóð

Fróðleikur:
http://www.tonlist.is/music/ViewBiography.aspx?AuthorID=2689
http://www.tonlist.is/Music/Album/1903/spilverk_thjodanna/sturla/

Youtube:
Því miður fann ég ekkert af þessum disk á youtube..hins vegar eru tvö lög með spilverkinu hér:
http://uk.youtube.com/watch?v=NN-0o3v0Jrw
http://uk.youtube.com/watch?v=1Qa3h4367LU

9 comments:

Heyjólfs said...

Án efa ein skemmtilegasta íslenska platan sem út hefur komið. Og þær voru reyndar nokkrar með Spilverkinu t.d. Bráðabirgðabúgí og Ísland fyrir utan Sturlu að sjálfsögðu.

Heyjólfs said...

Plötucoverið er svo alveg einstakt. Það mun seint gleymast.

Anonymous said...

Sammála í einu og öllu. Mætti halda að ég hafi tekið myndina á coverinu. En satt best að segja var ég tiltölulega ungur 1977 og ekki búinn að eignast ljósmyndavél þá.
kv/Sáki

Anonymous said...

Sáki! Ég man nú eftir þessari plötu næst efst í bunkanum hjá þér á eftir Tubular Bells, undir bleisernum, áður en við lögðum af stað í Árnes 16. september 1989!!
Kv. GG.

Anonymous said...

Vá..nú er HÖ heldur betur farinn að falsa undirskriftir ..hehe

Kveðja

Gaui...the real thing :)

Heyjólfs said...

Bara svo það komi skýrt fram þá á ég ekkert commenti frá 18.sept, 7:59PM og því ekki um neina fölsun af minni hálfu.
kv/HE

Anonymous said...

En 19.sept kl.10.32???

Heyjólfs said...

Ruglaði saman línum. Ég á ekkert í færslu skráða September 19, 2008 10:32 AM, svo það liggi alveg skýrt fyrir.

Anonymous said...

Það er greinilegt að hér er eitthvað gruggugt á seiði, svo það liggi alveg skýrt fyrir.

Kv. GG.