Friday, March 12, 2010

Tilnefning nr. 46 - Guðjón

Rómeó og Júlía - Bubbi[1985]

Ég vil tilnefna þetta lag
Bubbi – Romeo og Júlía

Stórkostlegt lag með frábærum texta.
Kom út 1985 á Kona



Tóndæmi 2

Cover:

Tóndæmi 1
Tóndæmi 2
Tóndæmi 3
Tóndæmi 4


Uppi í risinu sérðu lítið ljós,
heit hjörtu, fölnuð rós.
Matarleifar, bogin skeið,
undan oddinum samviskan sveið.

Þau trúðu á draumamyrkrið svalt,
draumarnir tilbáðu þau.
Fingurnir gældu við stálið kalt,
lífsvökvann dælan saug.

Draumarnir langir runnu í eitt,
dofin þau fylgdu með,
sprautan varð lífið, með henni gátu breytt
því sem átti eftir að ske.

Uppi í risinu lágu og ófu sinn vef,
óttann þræddu upp á þráð.
Ekkert gat skeð því það var ekkert ef,
ef vel var að gáð.

Hittust á laun, léku í friði og ró,
í skugganum sat Talía.
Hvítir hestar drógu vagninn með Rómeó,
við hlið hans sat Júlía.

Trúðu á draumamyrkrið svalt,
draumarnir tilbáðu þau.
Rómeó - Júlía.

Þegar kaldir vindar haustsins blása,
naprir um göturnar,
sérðu Júlíu standa, bjóða sig hása
í von um líf í æðarnar.

Því Rómeó villtist inn á annað svið,
hans hlutverk gekk ekki þar.
Of stór skammtur stytti þá bið
inni á klósetti á óþekktum bar.

Hittust á laun , léku í friði ...

No comments: