Friday, June 18, 2010

Tilnefning nr. 138 - Hörður

Jón var kræfur karl og hraustur - Þursaflokkurinn[1980]

Lagið kom út á plötunni " Á hljómleikum". Platan var hljóðrituð á tónleikum Þursaflokksins í Þjóðleikhúsinu 19.maí 1980. Sannarlega ekki dæmigert Þursalag en stórkostlegt engu að síður. Pönkið kemur hér enn og aftur við sögu.




Flytjandi: Hinn íslenski þursaflokkur
Lag: Tómas M. Tómasson
Texti: Jónas Árnason


Því þegar Jón í fyrsta sinn fékk litið dagsins ljós,
þá hafði pabbi hans tekið með sér mömmu hans til sjós.
En skyndilega kolblá alda yfir dallinn reið,
og mamma hans á dekkið féll og fæddi hann Jón um leið.

Viðlag:

Jón var kræfur karl og hraustur
Sigldi um hafið út og austur
Jón var kræfur karl og hraustur
Hann var sjómaður í húð og hár.


Og þegar Jón á sjónum hafði hamast ár og síð
hann útbyrðis á hausinn stakkst í stormasamri tíð
og þar var fyrir gamall hvalur gráðugur og stór
og Jón í gegnum kok hans alveg oní magann fór.

Jón var kræfur karl og hraustur
Sigldi um hafið út og austur
Jón var kræfur karl og hraustur
Hann var sjómaður í húð og hár.

Spoken:
Já, kæri sonur, hafið býr yfir hundrað hættum,
en mundu að pabbi þinn, flytur þér hljóða bæn
yfir sæinn... 1, 2, 1, 2, 3, 4

Og hvalurinn í burtu synti með sinn morgunverð
og stefnu tók á ballarhaf á 15 mílna ferð,
en Jón til baka aftur ruddist út úr gini hans,
og þakkaði fyrir samveruna og sagði "farvel frans".

Jón var kræfur karl og hraustur
Sigldi um hafið út og austur

Jón var kræfur karl og hraustur
Hann var sjómaður í húð og hár.
Hann var sjómaður í húð og hár.

Hann var sjómaður -í -húð -og -hár.
Hááááár....já háááár aaaaarrrggg