Tuesday, September 28, 2010

Tilnefning nr. 207- Guðjón

Öðruvísi en ég - Halli Reynis[1993]

Nú er komið að smá þema tilnefningum frá mér....“ lítt þekktir íslenskir trúbatorar“ – eða eins og einn vinur minn kallaði þá „ Bubba wannabe“ ! Ég á nú ekki von á að þessar tilnefningar fái mikið af atkvæðum frá félögum mínum en þetta eru allt lög sem ég hef hlustað mikið á í gegnum tíðina. Byrja á Halla Reynis – Öðruvísi en ég. Kom út 1993 á Undir Hömrunum Háu.



tonlist.is


Þú óttast ekki aðra,þó ertu oftast einn,
Svo þunghugsinn í þínum heimi.
Þú talar um heimspeki,guð og margt annað
Fyrir flestu fólki lokuð bók,þér ég aldrei gleymi.

Þú vilt vita margt,þú vilt vera fróður,
Afskaplega rólegur,saklaus og góður.
Enginn veit meira,þótt betur þér ég lýsi,
Inn í hópinn aldrei tekinn,því þú varst öðruvísi.


Þú kemur til dyranna eins og þú ert klæddur
Lífinu vilt lifa og aldrei hræddur
Þú segir líttu í kringum þig allir eru eins
Að vera öðruvísi en maður er,er ekki til neins.

Þú vilt vita margt,þú vilt vera fróður,
Afskaplega rólegur,saklaus og góður.
Enginn veit meira,þótt betur þér ég lýsi,
Inn í hópinn aldrei tekinn,því þú varst öðruvísi.

Þú íhugar svo margt í tilverunni
Kannar sérhvern stað,
Staldrar stutt við hverju sinni,svo ertu á förum.
Það er svo margt sem hugur þinn leitar að
Eflaust er það ástæðan að þú ert á hvers manns vörum.

Þú vilt vita margt,þú vilt vera fróður,
Afskaplega rólegur,saklaus og góður.
Enginn veit meira,þótt betur þér ég lýsi,
Inn í hópinn aldrei tekinn,því þú varst öðruvísi.

8 comments:

Anonymous said...

Má geta þess að myndbandið er eftir pabba snilla.
Kjartan Hólmar Sákason

Anonymous said...

Halli Reynis er snillingur - ekki spurning !

Anonymous said...

Sammála síðasta ræðumanni.
KHS(Kjartan Hólmar Sákason)

Anonymous said...

“lítt þekktir íslenskir trúbatorar“ gaman þegar þeir verða tilnefndir. bíð spennt eftir því. halli reynis getur ekki talist lítt þekktur. flott lag.

Anonymous said...

Halli Reynis - er reyndar líklega sá þekktasti - veit ekki hversu margir muna eftir næstu tveim. Reyndar eru smá tæknileg vandamál aðeins að tefja tilnefningarnar - en vona að við náum að kippa því í liðinn.

Anonymous said...

KHS,KOH,KLM hver er munurinn?
Sigmundur Smári

Anonymous said...

Sáki, Víglundur vistmaður, Sigmundur Smári, Kjartan Hólmar Sákason, Hörður Eyjólfsson, HE, Heyjólfs. Hver er munurinn. Snjáki.

Anonymous said...

Við hittum þá alla á föstudaginn....ásamt þér Snjáki !