
Nú er komið að snillingunum í Gildrunni.
Værð sem kom út á Hugarfóstur árið 1988
Þú komst með vorið um vetrarnótt
og vafðir hugann minn
Í húminu bærðist vindurinn
Hann himneskan heyrði sönginn þinn
Um ástir og eilífan dans
Um ástir og eilífan dans
Þú söngst í rjóðri um sólarlag
og fluttir sálminn þinn
Í kyrrðinni kvaddi helkuldinn
Hann heilagan kveikti neistann minn
Um ástir og eilífan dans
Um ástir og eilífan dans
Mmm, mmm, mmm, mmm, mmm, mmm.
Mmm, mmm, mmm, mmm, mmm, mmm.
Þú varst með völdin um vetrarnótt
og sýndir styrkinn þinn
Á heiðinn heyrðist hljómurinn
Hann háfleygann hreyfði drauminn minn
Um ástir og eilífan dans
Um ástir og eilífan dans
Um ástir og eilífan dans
Um ástir og eilífan dans
Mmm, mmm, mmm, mmm, mmm, mmm.
Mmm, mmm, mmm, mmm, mmm, mmm.
4 comments:
Flott lag
Já mjög flott...Gildran er topp hljómsveit !
Dásamlegt lag en samt ekki þeirra besta.
Enda er von á fleiri Gildru lögum frá mér !!
Post a Comment