
Nú er komið að tilnefningu úr flokknum „ lítt þekktur íslenskur tónlistarmaður“, Bjarna Tryggva og lagið Mitt Líf.
Lagið kom út 1986 á Mitt Líf – Bauðst eitthvað betra – sem er frábær plata.
Það er óhætt að segja að þetta er sannkallað gleðipopp, kallar á mann að hoppa út á dansgólfið :=)
http://www.tonlist.is/Music/Album/1791/bjarni_tryggvason/onnur_verold/
Ákvörðun er tekin,ekki aftur snúið.
Áður en það byrjaði var það búið.
Vinnið,sofið,étið,hver sem betur getur.
Ég geri það ekki svo ykkur líði betur
Hvort sem ég vel mér
Byssu eða hníf,
Þá er þetta mitt líf
Verið ekki að syrgja,
Ég valdi mér stund og stað.
Þó vafalaust mun verða talað um það.
Hættið að pæla, þetta var ákveðið stig fyrir stig.
Svo þið getið alveg sleppt því að sálgreina mig.
Með þessu marga
Ég til meðvitundar hríf,
En munið samt
Þetta var mitt líf.
11 comments:
Vá! Loksins meira, við höfum verið svo spenntar. Snilld. Jóna og Gunna.
nokkuð gott eða hvað - það heyrist ekkert hljóð - er það ég - er það stöffið - er það sáki sem er að klikka. víglundur
Gott að þið eruð ánægðar Jóna og Gunna...bið að heilsa köllunum ykkar þeim Jóni og Gunnari.
Víglundur....stinga töflunum í munninn ekki eyrun..þá heyrir þú mikið betur :)
Vígmóður Anonymous
Ánægð að loksins sé komið almennilegt gleðipopp hér á síðuna - takk fyrir þetta - kærlega !
Kidda Káta
Guðjón kann á okkur dömurnar. gunna systir jónu.
Tíhíhí
Jóna systir Gunnu
Það er gaman að sjá hvursu mikil gleði einkennir spjallið hér.
Hvað er sáki eitthvað að klikka? Kominn nýr dagur en ekki ný tilnefning. kar er kar er kar er kar er refsingin??? Bölmóður.
Ég skil Sáka vel - um að gera að hafa þetta gleðipopp efst á síðunni sem lengst...þetta léttir lundina og gefur ferskt bragð.
kveðja
Vígmóður Anonymous
"Hvort sem ég vel mér
Byssu eða hníf,
Þá er þetta mitt líf
Verið ekki að syrgja"
Mikil gleði þar. Skál!!
Ölmóður bróðir
Tóm gleði og hamingja - óhætt að segja að þetta sé gleðipopp :)
En lagið er mjög gott !
Post a Comment