Sunday, December 19, 2010

Tilnefning nr. 271 - Kjartan

Ragnheiður biskupsdóttir - Megas[1975]
Megas - Ragnheiður biskupsdóttir af millilendingu frá 1975

Meira af sagnfærði undan rós frá meistaranum



Ragnheiður biskupsdóttir brókar var með sótt
og beiddi þegar Daði mælti á latínu.
Hann kenndi henni sitthvað til gamans og til gagns
og gjörðist snemma þaulkunnugur gatinu.

Í skammdeginu vildi hend að villtust bestu menn
og var oft fyrir kvenlíkami í rúminu.
En milli draums og veru þeir vissu óglögg skil
og voru síst að pæla í þeim í húminu.

Og Ragnheiður hún fæddi einn dag hann Daðason,
menn dylgjuðu, menn bára hana út, menn hæddu hana.
En hlýðið góðir drengir, það er hlálegt en þó satt,
það var helvítið hann Brynjólfur sem sæddi hana.

4 comments:

Anonymous said...

Örugglega eitt af hans allra bestu lögum. Lag og texti framúrskarandi.
Sáki Nonameson

Gaui Gaua said...

Snilld....verður örugglega í topp 10 !!

KOH said...

Það er spurning. Ég var að reyna að setja upp topp 50 lögin so far um helgina og það var ansi snúið þar sem við erum búnir að tilnefna mýgrút af snilldarverkum. Það skal tekið fram að ég gafst upp á verkefninu.

Gaui Gaua said...

Það verður ekki auðvelt að raða þessu...úff...