Það er svo skrýtið - Vilhjálmur Vilhjálmsson[1977]
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Það er svo skrítið af hana nú frá 1977
Lagið eftir Magga Eiríks texti eftir Vilhjálm
Að sitja inni á bar og sjá ekki neitt,
segi ég öllum, mér finnist ei leitt.
En eaunin er sú, ef ráðum við í,
að reyndar við höfum ei gaman að því.
Það er einmanaleikinn, sem á mig og þig,
vera innan um fólk - þörfin örmagnar sig.
Ég augum lít fólkið - ályktun dreg.
Bara einmana mannverur, rétt eins og ég.
Það er nú svo skrýtið, er á það ég lít,
sú örvænting stórbrotin, segja ég hlýt,
þegar finn ég það út, ef fast ég brýt hugann
um ferðalag okkar á þessari storð,
alveg er sama hve ánægður dvel
í allsnægtum - mér verður ekkert um sel.
Hamingjan drukknar sem dægurflugan
í draumum um meira á allsnægtarborð.
5 comments:
já já komið nýtt ár með rólegheitum.
Ölmóður
Engin ástæða til að böðlast áfram með einhverjum látum eftir allt ketátið.
Bölmóður bróðir.
Villi lifir
maður þarf engin lyf bara hlusta á villa !!!
víglundur
Enga neikvæðni Víglundur! Eða eins og einn mætur maður orðaði það; eigum við að rífast um þetta?
Post a Comment