Falleg augu þín - Halli Reynis[1993]
Halli Reynis – Falleg augu þín
Kom út 1993 á Undir Hömrunum Háu.
Ég gekk útí myrkrið og
Tunglið til mín brosti.
Ég taldi nokkrar stjörnur
Klæddur næturinnar frosti.
Ég gekk framhjá húsi þínu,
Horfði á það um stund
Hjartað barðist í brjósti
Mínu þráði á þinn fund.
Ég hafði ekki kjark til þess
Að knýja að dyrum,
Kliður þess liðna vaknaði sem
Enginn lengur spyr um.
Jú,víst var ég forvitinn að fá
Að hitta þig í nótt,
Finna þig í fangi mínu svo ég
Gæti sofið rótt.
Ég hef verið mikið einn
Allan þennan tíma,
Bara ef ég gæti talað við þig,
Þó ekki nema í síma.
Því ég þrái svo að heyra
Hvaða hug þú berð til mín,
Hugur minn geymir mynd af
Þér og falleg augu þín.
Þú sagðir fyrir löngu
Síðan,lítum ei til baka,
Leyfum minningunni að lifa,
Það er engan að saka.
Ást er aðeins tímans
Óskrifaða blað.
Á hvað það verður skrifað,
Það er nú það.
Ég hef verið einn á kvöldin
Og uni mér best í næði,
Eflaust er best að gleyma
Þessu fyrir okkur bæði.
En ég þrái svo að heyra
Hvaða hug þú berð til mín,
Hugur minn geymir mynd af þér
Og falleg augu þín.
2 comments:
Halla Reynis í Eurovision ekki spurning.
Sáki Hermanns
Við erum spenntar.
Post a Comment