Minning um mann - Logar[1977]
Logar - Minning um mann af mikið var frá 1977
Gítargrip
Nú ætla ég að syngja ykkur lítið fallegt ljóð
um ljúfan dreng sem fallinn er nú frá,
um dreng sem átti sorgir en ávallt samt þó stóð
sperrtur þó að sitthvað gengi á.
Í kofaskrifli bjó hann, sem lítinn veitti yl,
svo andvaka á nóttum oft hann lá.
Þá Portúgal hann teygaði, það gerði ekkert til,
það tókst með honum yl í sig að fá.
Þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann.
drykkjuskap til frægðar sér hann vann.
Börnum var hann góður, en sum þó hræddust hann,
þau hæddu hann og gerðu að honum gys.
Þau þekktu ei, litlu greyin, þennan mæta mann,
margt er það sem börnin fara á mis.
Þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann.
drykkjuskap til frægðar sér hann vann.
Munið þið að dæma ei eftir útlitinu menn,
ýmsum yfir þessa hluti sést.
Til er það að flagð er undir fögru skinni enn,
fegurðin að innan þykir best.
Þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann.
drykkjuskap til frægðar sér hann vann.
Nú ljóðið er á enda um þennan sómasvein,
sem að þráði brennivín úr stæ.
Hann liggur nú á kistubotni og lúin hvílir bein
í kirkjugarði í Vestmannaeyjabæ.
9 comments:
Get upplýst það að mínu fyrstu plötukaup voru þegar ég keypti 7" með laginu minning um mann.
Það var í þá gömlu góðu daga þegar Ómar hafði hár.
Ég skil vel að þú hafir byrjað á því að kaupa þetta lag enda er það klassík.
Á einhver hér miða á tónleika með vini mínum Bo Halldórs?
Sáki
já hugsanlega hinn vinur þinn, hann hö eyjólfs.
Hvernig voru tónleikarnir Sáki og Hö. Náðuð þið sætum hlið við hlið og nálægt goðinu?
Ögmundur
Á tónleikum sátu saman
Hö og Sáki hönd í hönd.
Bó stóð, voða gaman
og þandi ryðguð raddbönd.
Ekki hefur síðan frést
hvar hinar hvíldu hendur.
En til Hös hefur síðan sést
með Sáka, ávallt kendur.
Hallmundur
ég þekkti þennan mann
ég líka
Post a Comment