
Ég varð fyrir mikilli upplifun nú í sumar. Eiginkona mín kom mér á óvart – og gaf mér geisladisk Valdimar – Undraland. Að mínu mati er þetta einn besti geisladiskur sem komið hefur út í mörg ár – hrein snilld. Ég býst við að tilnefna hvert einasta lag af þessu meistaraverki , og ætla að byrja á laginu „Þessir menn“.
Youtube
Mannlíf
Farðu að hugsa, farðu að hugsa,
farðu að hugsa systir góð.
Fylliraftar og vitleysingar gera engum konum bót.
Þín viska ætti að vera meiri en það.
Þessir menn sem að þú umgengst
eiga ekki skilið neitt.
Þína fyrirgefningu fá þeir þó oftast yfirleitt.
Þín góða lund, er úttröðkuð af flóns skóm.
Þú átt svo mikið betra skilið,
reyndu nú að brúa bilið
Þeir blinda sýn þín og binda sál þína
Ekki hlusta á þá þeir reyna að sýna þér hlið sína
Þeir kynda bál úr neista, ekki ylja þér þú veist það
Þín ást og alúð nýta, og vandamál sín hnýta
í gegnum þig, vertu sterk vertu hugrökk vertu þú
Átt ekki að gera fyrir þá sem ekki gera fyrir þig
Ekki hægt að bjarga leikurum sem auma leika sig
Sumum mönnum verður ekki breytt
Farðu að hugsa, farðu að hugsa
Farðu að hugsa systir mín,
Þessir menn eru engir dýrðlingar, breyta ekki vatni í vín
Þín litla tá er stærri en þessir menn
Þú átt svo mikið betra skilið,
reyndu nú að brúa bilið
Þeir blinda sýn þín og binda sál þína
Ekki hlusta á þá þeir reyna að sýna þér hlið sína
Þeir kynda bál úr neista, ekki ylja þér þú veist það
Þín ást og alúð nýta, og vandamál sín hnýta
í gegnum þig, vertu sterk vertu hugrökk vertu þú
Þú átt svo mikið betra skilið,
reyndu nú að brúa bilið
Þeir blinda sýn þín og binda sál þína
Ekki hlusta á þá þeir reyna að sýna þér hlið sína
Þeir kynda bál úr neista, ekki ylja þér þú veist það
Þín ást og alúð nýta, og vandamál sín hnýta
í gegnum þig, vertu sterk vertu hugrökk vertu
Höfundur lags: Valdimar Guðmundsson
Höfundur texta: Valdimar Guðmundsson
7 comments:
Takk fyrir að vera farnir af stað aftur....nú fer lífið að brosa við mér aftur :)
og þvílík byrjun - alger snilld !
Kveðja
Bróðir Illuga
Ég hef alltaf kunnað því illa að vera minni en þú kæri bróðir en ég er ánægður með að Guðjón skuli tilnefna þessa frábæru Garðbæinga!
Illugi.
Flott lag
Þessi hljómsveit er stórkostleg....á bara erfitt með að velja hvaða lag af þessu meistaraverki ég mun tilnefna næst !
Já ég verð að vera sammála því að þessa plötu hefði mátt tilnefna í heild. Hef ekki hlustað á þessa kappa fyrr þannig að þú átt þakkir skildar fyrir að tilnefna þá!
Valdimar fór á kostum í þættinum Hljómskálinn í síðustu viku. Skylduáhorf.
http://www.ruv.is/sarpurinn/nr/4616528
Hljómskálinn kom verulega á óvart. Frábærir þættir ef marka má þann fyrsta. Slá þó ekki við kolgeitinni, enda ekki mögulegt.
Runólfur.
Post a Comment