Við rakaðan Spámanninn - Mamma var Rússi[1986]
Spurning hvort flokka eigi þessa tilnefningu undir lítt þekktir íslenskir tónlistamenn eða ekki...allavegana vil ég tilnefna afsprengi Fræbblanna – Mamma var Rússi og lagið Við Rakaðan Spámanninn. Lagið kom út á meistaraverkinu Draugar
Hljómsveitin var skipuð þessum:
Valgarður Guðjónsson – söngur, gítar
Stefán Karl Guðjónsson – Trommur
Arnór Snorrason – gítar
Helgi Briem – bassi
Iðunn Magnúsdóttir – söngur
Brynja Arnardóttir – söngur
Kristín Reynsdóttir – söngur
http://www.hugi.is/tonlist/articles.php?page=view&contentId=770016
http://www.valgardur.com/
Sjá hér gamlan svikahrapp
Selja tuskudúkkum happ
Undir yfirskyni því
Að allt sé merkin skrifað í
Stjörnuómerkilegt staut
Er allt hans innantóma taut
Það vekur viðbjóð innan til
Er vísindagyðju daðrar við
Það má víst teljast merkilegt
Hve margir trúa á tungl
Og ótrúlegt hversu illa blekkt
þau álpast inná hans rugl
Þí framtíð fagmannlega er ort
Og færð þar inná stjörnukort
Það líf víst lítils virði er
Sem lætur stjörnur stjórna sér
Aum er afsökunin sú
Er iðrast innilega þú
Af efni í blóraböggul þinn
Er birgur stjörnuglópurinn
Við steina á himni og stjörnustokk
Fær staðföst trúin skjól
Enda algjört auraplokk
Af álfum út úr hól.
7 comments:
Verð víst að játa að ártalið vafðist aðeins fyrir mér. Á síðunni hjá Valgarði var það 1986-1987 en svo fann ég aðrar heimildir sem sögðu 1984.
1986 hljómar ágætlega, stendur ekkert á vínylplötunni?
Gat því miður ekki fundið neitt ártal á henni...sorrý..ég er sammála 1986 hljómar mjög sannfærandi :)
Af hverju ekki bara að kasta upp á það. HVAÐA MÁLI SKIPIR ÞETTA ?!?! Bölmóður
Bölmóður alltaf jafn kátur !!
fáum okkur bara einn þrefaldan og njótum laxins. ölmóður
Post a Comment