
Sigur Rós - Heysátan af Takk... frá 2006
Þetta er að mínu áliti eitt albesta verk snillinganna og eitt það besta sem ég hef heyrt. Myndbandið er tekið upp á þeim magnaða stað Selárdal. Það er heitið veglegum verðlaunum ef einhver getur svarað hvað "hallí ró" er.
Heysátan.
Höfðum þau hallí ró
en ég sló.
Ég sló tún.
Ég hef slegið fjandans nóg
en ég sló.
Heysátan.
Þá fer að fjúka út,
út í mó
ég dró heyvagn á massey ferguson,
því hann gaf undan
og mér fótur rann, andskotans.
Ég varð undan
og nú hvíli hér
með beyglað der
og sáttur halla nú höfði hér.
10 comments:
Er í sammála gírnum. Frábær tilnefning.
Sáki
Hallí ró er greinilega ró sem notuð er í slátturvélina svo hægt sé að slá öll þessi tún ! Hvað fæ ég í verðlaun ??
Ölóður Anonumouse
Hvenær fæ ég verðlaunin?
Bölmóður
Þú verður fyrst að koma með tilgátu Bölmóður. Mín tilgáta er að Halli sé rólegur um þessar mundir enda hafi hann tekið inn nokkrar bláar. Víglundur.
Ég styð tillögu Ölmóðs - það er greinilegt að pilturinn hafi verið að fara að slá grasflötinn - en síðan hafi hin svokallaða Hallí Ró dottið af og því hafi þetta neyðarástand myndast. Hann reyndi samt að slá - en Hallí Ró var mun mikilvægari heldur en hann hélt í byrjun.
Sjá:
Heysátan.
Höfðum þau hallí ró
en ég sló.
Ég sló tún.
Ég hef slegið fjandans nóg
en ég sló.
Kveðja
Gólóður
Þetta er eins góð tillaga og hver önnur. Nú þarf ég bara að hitta ykkur Bölmóður og Ölmóður og afhenda ykkur verðlaunin. Hlakka mikið til.
By the way....ætli þeir félagar Víglundur, Ölmóður og Bölmóður mæti á Ask - 22.12.2010 ???
Hvað gerist þá?
Ýmislegt
úffffff.
Post a Comment