Thursday, December 16, 2010

Tilnefning nr. 268 - Kjartan

Manstu - Ásbjörn Kristinsson Morthens[1987]

Ásbjörn Kristinsson Morthens - Manstu af Dögun frá 1987.

Athugasemd vefstjóra: Tilnefnari og vefstjóri fundu ekki lagið á youtube, ef einhver les þetta þá má væri vel þegið að koma með lagið á youtube. Lagið er þó að finna í spilaranum.

Manstu þær nætur þegar engan svefn var að fá?
Endalaus partý, aldrei, aldrei slakað á.
Jaxla við bruddum bláir undir augum fölir á kinn.

Manstu þá daga þegar dópið var eini vinur þinn?
Manstu þegar óttinn fór á stjá?
Fórum aldrei til dyra nema fyrst að gá.
Þegar feigðin dansaði fyrir utan gluggann minn.

Tónlistin var svört, hún gaf okkur breik,
koma niður með stíl og feitum reyk.
Við neituðum að trúa að þetta væri allt feik.
Það væri búið að dæma okkur báða úr leik.

Manstu þá daga þegar dýrðin var til?
Rifum niður skápa, skriðum bak við þil.
Mínútan varð að martröð sem ekkert sló á
nema skammtur af Perú en það var ekkert að fá.

Manstu svo loks gamli að augun gátum ekki opnað?
Hræddir við að deyja, gátum ekki stoppað.
Og ég man þá daga vinur minn.

11 comments:

Heyjólfs said...

ágætis lag en samt ekki meðal hans bestu að mínu mati.

Anonymous said...

Þessari tilnefningu er greinilega beint til vinar okkar og traust áskrifanda af síðunni...Víglundar.
Greinilegt að Kjartan og hann hafi brutt hinar ýmsar gerðir af töflum í den !!

Gaui Gaua said...

Verð að taka undir með Heyjólfs...ágætt lag en ekki eitt af Bubba bestu !

KOH said...

Látið ekki myndina trufla dómgreindina. Hún tengist laginu ekkert. Einungis sett inn til gamans. Þetta er eitt besta, ef ekki besta lag bubba. þriggja laga massi af bestu gerð. Útsetningin gæti þó verið betri.

Anonymous said...

getur Sáki ekki reddað þessu á youtube?

Bjartur

Anonymous said...

Mér skilst að Sáki Guðjónsson sé með þetta í vinnslu.
Sáki G.

Anonymous said...

ok gott mál sáki höddason

Anonymous said...

Platan Dögun kom út 19.nóvember 1987, sama dag og góðvinur minn hélt upp á stórafmæli sitt. Man ekki hvort mér var boðið.
Sáki

Anonymous said...

Sáki Guðjónsson hefur ekkert hugleitt þetta...hvað þá að þetta sé komið í vinnslu...svo Sáki G. er eitthvað að bulla - líklegast er Sáki HöHö eitthvað að rugla í honum.

Anonymous said...

Ég hef áhyggjur af andlegu heilsufari síðustjóra. Dr. Gunni.

Anonymous said...

Nýr dagur heilsar.
Sigurbjartur Hannes