Arinbjarnarson - Spilverk Þjóðanna[1977]
Arinbjarnarson kom út 1977 á Sturlu. Eitt af fjölmörgum meistaraverkum Spilverksins.
Myndbandið mjög áhugavert.
Hví er ég Arinbjarnarson
En hvorki Kúld né Schiöth
Sem búa'á númer þrettán
Í sömu götu og ég
Í sama húsi og ég?
Á sömu hæð býr afi Arinbjörn
Og amma Fía sparsöm kona on'úr hreppum
Sem lifir dauðann af
Í dönskum bókaskáp
Mamma vildi annan mann
Og pabbi annað víf
En það fæddist lítið barn
Hér á þessum stað
Mér finnst það fjandi hart
Því barnið, ég er það
Ra - la - la - la - la - la - la
Því er ég hér en ekki þú
Og við við en ekki bara eitthvað annað
Maðkur eða mús
Máfur eða hús
Dagblað eða djús
Krukka eða krús
Mínus eða plús
Andrés eða önd
Ég en ekki þú
11 comments:
Mjög áhugavert myndband. Kom Sáki nálægt gerð þess?
Hef frekar grun um að vinur einhvers í 104 eigi heiðurinn.
Hvaða vin átt þú í 104 sem hefur komið nálægt gerð þessa myndbands...ég er orðinn forvitinn !!!
Það er slatti af fólki sem býr í 104 og það fólk á sko marga vini. Býr td. sáki enn í 104?
Ekki hugmynd !! En hver gerði myndbandið ???
Ég er hræddur um að það sé leyndardómur sem seint fást svör við. Ég hef sáka sterklega grunaðan og ég held held að ræturnar liggi í 105 en ekki 104.
Við erum þá sammála um það KOH !
Veit vel að Sáki hefur mikil völd. En það er nú samt þannig líka að máttur internetsins er slíkur að Sáki kallinn kemur þar nú ekki alltaf við sögu. Það á við í þessu tilviki. En mín tilfinning er samt sú að myndbandið gæti verið tekið upp nærri Laugardalnum.
Húsið í myndbandinu er greinilega í hlíðunum, það er ekki nokkur spurning.
Eigum við að rífast hvar húsið er. Það er í Sandgerði.
Já alveg til í að rífast um það en hef bara ekki tíma. Einhvern tíma seinna !!!
Ögmundur
Post a Comment