Saturday, October 2, 2010

Tilnefning nr. 210 - Guðjón

Lífsgangan - Siggi Guðfinns[1998]

Næsti trúbador er Siggi Guðfinns – lagið Lífsgangan sem kom út 1998 á frábærum disk sem heitir Svona er Lífið. Diskinn gaf hann út til minningar um bróður sinn sem lést 1980. Þessi diskur er virkilega góður og hvet ég alla til að hlusta á hann.



http://www.tonlist.is/Music/Artist/3787/siggi_gudfinns/
http://www.icelandicmusic.com/Music/Album/2609/siggi_gudfinns/svona_er_lifid/

Ég vaknaði þér þreyttur og sofnaði þér sár
Og suma daga átti ég sem voru eins og ár
En af engu vildi missa hvorki stund né stað
Og stundum vildi ég óska að ég væri að leggja af stað

Þú gafst mér bjarta daga þú gafst mér gullin vín
Ég gjafir þínar þáði og lá við brjóstin þín
Á meðan þú í allsnægt þinni söngst minn auðnu óð
Örlaga minna þráð þó ófst og drakkst mitt hjartablóð

1 comment:

Anonymous said...

Frábært lag - með virkilega góðum tónlistarmanni. Gaman væri að heyra eitthvað meira frá honum.