Sunday, October 31, 2010

Tilnefning nr. 227 - Hörður

Eyðimörk - S.H. Draumur[1987]
Ein af bestu hljómsveitum íslenskrar tónlistarsögu er án nokkurs vafa hljómsveitin S.H. Draumur. Nýverið kom hljómsveitin fram á Iceland airwaves hátíðinni. Lagið Eyðimörk er tekið af "7(EP) "Drap mann með skóflu" sem kom út árið 1987 á sama ári og hin frábæra Goð sem hefur verið ófáanleg um langa hríð en hefur verið endurútgefin með aukaefni. Vonandi verður hægt að koma með frekari tilnefningar
þegar(og ef) lög af "Goð" rata inn á Youtube. Svo má til gamans geta að hljómsveitin S.H. Draumur verður með tvenna tónleika á næstu vikum, þá fyrri 20.11. á Akureyri. Seinni tónleikarnir verða á Sódómu 04.12.2010. Er ekki skyldumæting?



Hér er hægt að kaupa endurútgáfu af Goð
Dómur um plötuna

http://iceblah.typepad.com/mostly_music_lots_of_it_i/2010/10/iceland-airwaves-2010-interview-16-dr-gunni-shdraumur.html

10 comments:

Anonymous said...

Frétt mbl. um þessa tónleika sem HE vitnar í.

http://mbl.is/folk/frettir/2010/10/30/s_h_draumur_med_tvenna_tonleika/

Sáki

Anonymous said...

Sáki verðum við ekki að mæta?
Einar

KOH said...

Mætum (ekki sáki)

Anonymous said...

Nú er bara um að gera að skella sér á sódómu 04.des. Kaupa miða hér.
http://midi.is/tonleikar/1/6228/

Anonymous said...

Og hver ert þú Anonymous sem ert að reyna að draga fólk á tónleika ?? Ég fer nú ekki með hverjum sem er, það er alveg á hreinu...og ert þú kannski á prósentum ??

Vígmóður Anonymous

Anonymous said...

Ég fer ekki með nafnlausu fólki nema það sé í hausnum á mér. Víglundur.

Anonymous said...

Og þar er nú slatti af misgáfulegu fólki !!

Vígmóður Anonymous

Anonymous said...

Satt er það, satt er það. Hef verið að berjast við skrýmsl að nafni Hö og Gö undanfarið í sýndarveröldinni. Sér ekki fyrir endann á þeirri baráttu. Víglundur.

Anonymous said...

Gö hefur ekki tengst þér Víglundur á nokkurn hátt - líklegast ert þú farinn að troða þér inní hugarheim minn.

Vígmóður Anonymous

Anonymous said...

Það er náttúrulega eingöngu fólk sem tengist mér ekki neitt sem ég glími við í tetrinu. Hef til dæmis lagt Tom Waits á hælkrók vinstri. Já og það oft. Man samt ekki eftir að hafa hitt kappann. Víglundur.