90 Kr. Perla - Maus[1997]
Nú er komið að Bigga og félögum í Maus – 90 kr. Perla
Lagið kom út á Lof mér að falla að þínu eyra – árið 1997
http://www.randburg.com/is/skifan/maus.html
http://maus.grapewire.net/shop/maus/lof-mer-ad-falla-ad-thinu-eyra
http://www.tonlist.is/Music/Album/2340/maus/lof_mer_ad_falla_ad_thinu_eyra/
Það er allt satt sem þú heyrðir,
ég keypti þetta lag
á bás þrjátíuogfjögur fyrir aðeins 90 kall
af gömlum þreyttum skallapoppara.
Og hann lofaði mér að það skyldi hljóma
löngu eftir að ég er dáinn.
Og ég vil peninga
fyrir perluna
til að lifa af þér!
En ef að lagið skyldi ekki hljóma nógu oft
og fuðra upp sem ódýr tilraun af flösuþeytara,
já, þá ertími til að leggja niður vopnin,
já, þá erkominn tími til að gera eitthvað gott.
því ég vil peninga
fyrir perluna
til að lifa af þér!
En ég vil endurgreiðslu,
því þetta er gallað lag!
það grúvar ekki neitt
og það er erfitt að dansa við það!
og ég finn það núna,
að ég er að missa trúna
á að það sem er gott,
það seljist ...
da da da da da
na na na na na
na na na na na ...
18 comments:
íslenskt og gott. Gott vídeó.
Sigurður Smári
Takk Siggi Smári !!
Þess má til gamans geta að faðir Bigga og Björgvin nokkur Halldórson léku saman í fyrstu hljómsveit Björgvins.
Er komið keppnisskap í menn - engu að síður er þetta gott lag !!
Hvaða keppni er í gangi?
Ýmsar - boccia...enski boltinn...handboltinn...karfa og svo mætti lengi telja.
ok það er þá boccia-ð sem hlítur að valda þessu meinta keppnisskapi sem síðuhirðir minnist á.
Finnst það lang líklegast !
Hvenær kemur næsti trúbador? Ég bíð spennt !!! Víglundur.
Kæra Víglunda - það eru komnir þrír túbadorar - eins og lofað var - reyndar einn enn sem bíður á hliðarlínunni, en smá tæknileg vandkvæði enn á þeirri tilnefningu.
En ég er forvitinn - er Víglundur - herra eða frú ?
Ég er búinn að klára brúnu pillurnar þannig að það þýðir ekkert fyrir þig að spyrja mig svona flókinna spurninga. Vegna skorts á töflum gæti þess vegna verið heill dýragarður hérna megin fyrir hádegi á morgun. Víglundur.
Tókst að cracka kódann...ég veit allt um Víglund....úje !
Hver er cracka kódinn á kleppi?
Spurðu bara vörðinn......spurðu bara vörðinn aftur !
Hvert er verðið crack kódeini og hvar verður maður sér úti um það? Víglundur.
......spurðu bara vörðinn aftur !
Hvaða vörð ertu alltaf að tala um !?! Vörð Ólafsson ??? Víglundur.
Vörður er greinilega sannur viskubrunnur. Geymir hann etv. leyndarmálið að baki tilgangi lífsins? Kalli Sig.
Post a Comment